11 Mars 2009 12:00

Fjörutíu og sex ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurbraut í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut, nærri Lindarhvammi, fyrir hádegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut, nærri Hvaleyrarskóla, eftir hádegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst. Einn ók á 70 km hraða eða meira en sá mældist á 77. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sömu stöðum við Suðurbraut og þá óku hlutfallslega mun færri of hratt eða yfir afskiptahraða. Niðurstaðan nú er því nokkuð áhyggjuefni.