1 Apríl 2025 15:38
Brot 34 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í norðurátt, við Suðurgötu 29. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 143 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.