9 Ágúst 2010 12:00

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, að Kirkjugarðsstíg. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 132 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Eftirlit lögreglunnar á Suðurgötu var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.