1 Júní 2011 12:00

Brot 107 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, að Kirkjugarðsstíg, en þarna er einstefna. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 188 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58. Eftirlit lögreglunnar á Suðurgötu var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur.

Þess má geta að átján hjólreiðamenn áttu leið um Suðurgötu á meðan vöktun lögreglunnar stóð en við eystri brún götunnar er sérstök reiðhjólarein. Aðeins tveir þeirra notuðu reiðhjólareinina, hinir hjóluðu ýmist á þeim hluta götunnar sem er ætluð bílaumferð eða á gangstéttinni vestanmegin við akbrautina.