2 Febrúar 2021 10:44

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 594 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.