4 Febrúar 2020 13:38

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 302 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 102 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að slydda var á meðan hraðamælingunni stóð.