20 Desember 2021 09:07

Brot 110 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, á móts við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 269 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.