27 Nóvember 2009 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, á móts við Laugardalslaugina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 367 ökutæki þessa akstursleið og því ók innan við tíundi hluti hluti ökumanna, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Eftirlit lögreglunnar á Sundlaugavegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Ábendingunum var komið á framfæri á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki í hverfinu og haldinn var sl. þriðjudag.