5 Júlí 2021 09:12

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.