17 Febrúar 2025 16:22
Brot 5 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Mosskóga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.
Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.