3 Mars 2025 14:34
Brot 24 ökumanna voru mynduð á Þorragötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þorragötu í austurátt, við Reykjavíkurveg. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
Vöktun lögreglunnar á Þorragötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.