3 Apríl 2019 10:31

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 132 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.