8 Júní 2022 09:22

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Bjarkarholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 586 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.