29 September 2021 11:02

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.255 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjókoma og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.