15 Nóvember 2018 17:44

Brot 104 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, að Höfðabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.303 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tólf óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.