20 Mars 2025 12:39

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 90 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.