22 Ágúst 2024 09:19
Brot 36 ökumanna voru mynduð í Álfheimum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfheima í norðurátt, á móts við Álfheima 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 90 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.
Vöktun lögreglunnar í Álfheimum er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.