27 Ágúst 2008 12:00

Brot 61 ökumanns var myndað í Arnarbakka í Breiðholti í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, að Dvergabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 70.  

Niðurstaðan í dag er eilítið skárri en við síðustu mælingu í Arnarbakka. Þá óku 57% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var þá ámóta og núna.