8 Nóvember 2024 09:58
Brot 17 ökumanna voru mynduð í Borgartúni í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgartún í vesturátt, að Þórunnartúni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 198 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Vöktun lögreglunnar í Borgartúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.