2 September 2009 12:00

Tuttugu og fjórir voru staðnir að hraðakstri í Breiðumýri á Álftanesi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 24 ökumanna mynduð í Breiðumýri en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því óku 62% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Breiðumýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en við götuna er Álftanesskóli.