26 Ágúst 2024 09:15

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lindarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.