25 Mars 2025 10:53

Brot 31 ökumanns var myndað í Dugguvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dugguvog í norðurátt, frá Kuggavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Dugguvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.