5 Október 2012 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Fitjalind í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fitjalind í suðurátt, að Fjallalind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 16 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Fitjalind er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.