21 Apríl 2009 12:00

Fimmtíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri í Grænatúni í Kópavogi á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 54 ökumanna mynduð í Grænatúni en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og því óku 64% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Grænatúni og þá óku sömuleiðis mjög margir of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 76%. Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 48 km/klst.