6 Maí 2016 14:55

Brot 34 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.