17 September 2019 10:02

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 80, skammt frá Sæmundarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.