14 Ágúst 2012 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Hæðargarði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hæðargarð í austurátt, á móts við leikskólann Jörfa. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53. 

Vöktun lögreglunnar í Hæðargarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.