12 Október 2009 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað í Hraunsási í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunsás í vesturátt, að Eyktarási. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 37 ökutæki þessa akstursleið og því meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. 

Eftirlit lögreglunnar í Hraunsási var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.