11 Janúar 2011 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í gær en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða tæplega 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði.