4 Júní 2009 12:00

Tuttugu og þrír voru staðnir að hraðakstri í Safamýri í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 23 ökumanna mynduð í Safamýri en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, að Framheimilinu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því óku 47% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Safamýri og þá óku 43% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (47 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 44 km/klst.