21 Maí 2019 16:24

Brot 78 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, á móts við Vogaskóla. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 214 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.