5 September 2024 14:23
Brot 42 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, að Karfavogi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 252 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.