22 Ágúst 2024 09:52
Brot 14 ökumanna voru mynduð í Stóragerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stóragerði í norðurátt, á móts við Stóragerði 3. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar í Stóragerði er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.