24 Apríl 2009 12:00

Sjötíu og fimm voru staðnir að hraðakstri í Suðurhólum í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 75 ökumanna mynduð í Suðurhólum en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Álftahólum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 262 ökutæki þessa akstursleið og því óku 29% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Suðurhólum og þá óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna (303 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 43 km/klst.