6 September 2024 14:10

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í austurátt, að Brekkugötu. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 159 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.