7 Nóvember 2024 10:38
Brot 39 ökumanna voru mynduð í Vesturbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturberg í norðurátt, á móts við Vesturberg 81. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.
Vöktun lögreglunnar í Vesturbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.