22 Apríl 2025 11:20

Talsverður erill var á Norðurlandi vestra yfir páskahátíðina en alls eru skráð rúm 240 mál frá miðnætti á miðvikudag, fram til miðnættis á mánudag. Talsvert var um skemmtanahöld sem fóru að mestu vel fram, fylgst var gaumgæfilega með ástandi og réttindum ökumanna.

Mikil umferð var um umdæmið og talsverður hraði á umferðinni, alls voru um 130 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Nokkuð margir óku á 120-130 km/klst en tveir ökumenn mega eiga von á því að missa ökuleyfi sitt tímabundið en annar þeirra ók á 148 km/klst og hinn á 151 km/klst. Þá var hinn síðarnefndi einnig boðaður með ökutæki sitt í skoðun. Haft var samband við foreldra viðkomandi ökumanns sem og afskiptin tilkynnt til viðeigandi barnaverndar, en ökumaðurinn hafði ekki náð 18 ára aldri.

Við sjáum glöggt að bensínfóturinn er að þyngjast með hækkandi sól, við hins vegar brýnum fyrir ökumönnum að gæta að hámarkshraða því það er allra hagur að enginn slasist í umferðinni.