12 Október 2020 14:42

Frá því að grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu tóku aftur til starfa í ágúst hefur lögreglan verið með aukið eftirlit við skólana í umdæminu og þar sem þekkt er að börn þurfi að þvera veg til að komast til og frá skóla, en meðal annars hefur verið notast við ómerkta lögreglubifreið með hraðamyndavélabúnaði við eftirlitið. Fram að þessu hefur hraðamyndavélin skráð 597 hraðakstursbrot þar sem ökumenn mega búast við sekt og í sumum tilfellum að verða sviptir ökuleyfi. Á þessum stöðum, þar sem leyfður hámarkshraði er 30, hefur meðalhraði hinna brotlegu verið 43 km/klst. Við fyrrnefndar hraðamælingar hefur enn fremur 47 ökutækjum verið ekið á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 65. Alls hafa 2.003 ökutæki verið vöktuð við þessar hraðamælingar og því er brotahlutafallið 31%. Niðurstaðan sýnir að ökumenn verða að gera betur og því er full ástæða til að minna þá á að aka hægar og sýna meiri tillitssemi í námunda við skólana þar sem margir eru á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem voru að hefja skólagöngu.

Allir ættu að geta fallist á mikilvægi þess að leyfður umferðarhraði sé virtur í kringum skólana og við þær leiðir sem börnin okkar nota til að komast til og frá skólum og frístundastarfi. Virðum rétt þeirra – virðum hámarkshraða.