13 Júní 2025 11:31

Lagt var hald á töluvert magn af ætluðum fíkniefnum og nokkrar milljónir í reiðufé við húsleit í íbúð í miðborginni fyrr í vikunni. Húsráðandi, karlmaður á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, sem miðar vel. Lögreglan tók einnig í sína vörslu síma og tölvur húsráðanda, auk vegabréfs óskylds aðila, en það fannst einnig á vettvangi. Grunur leikur á að reiðuféð, sem samanstóð af bæði íslenskum og erlendum seðlum, sé tilkomið vegna sölu fíkniefna.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.