Opnað verður aftur fyrir umferð um svæðið í dag með takmörkunum.
3 Febrúar 2021 11:13

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra:

  • Vegurinn yfir Jökulsá opnaður aftur með takmörkunum
  • Óvissustig almannavarna vegna krapahlaups í Jökulsá á Fjöllum áfram í gildi
  • Engar vísbendingar um að nýjar stíflur séu að myndast í ánni ofan við brúna
  • Enn hætta á krapahlaupum í Jökulsá á Fjöllum

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglan á Norðurlandi eystra, Vegagerðin og Veðurstofa Íslands funduðu í morgun vegna Jökulsár á Fjöllum.

Í gær var veginum um Mývatnsöræfi lokað vegna aukinnar hættu á að þrepahlaup gæti verið að hefjast í Jökulsá á Fjöllum.  Gervitunglamyndir sýndu breytingar á milli daga, uppsöfnun krapa var 3 km sunnan við brúna og minniháttar óróamerki mældist um tíma á jarðskjálftamæli nálægt brúarstæðinu.  Af þeim sökum þótti réttast að loka veginum á meðan frekari athuganir færu fram.

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands fóru í könnunarflug eftir ánni í gær. Þá sást að augljóslega er enn mikill krapi í ánni og nær hann rúma 3 km frá brúni upp með ánni. Ís getur haldið áfram að safnast upp á meðan kalt er í veðri. Engar vísbendingar sáust þó um að nýjar stíflur væru að myndast ofan við brúna sem framkallað gætu sambærilegt hlaup og varð þann 26. janúar síðastliðinn. Lækkandi vatnshæð við brúna í gær voru líklega merki um að áin væri að bræða af sér krapa og vatn þannig að finna sér leið undir krapanum. Ekki er þó hægt að útiloka annað krapahlaup og því er nauðsynlegt að fylgjast áfram vel með þróun mála. Niðurstöður fundarins voru þær að óhætt er að opna veginn aftur með þeim takmörkunum sem áður voru.

Vegurinn verður opinn næstu daga á milli 09:00-18:00, en lokaður utan þess tíma.  Þetta fyrirkomulag verður endurskoðað á föstudaginn að öllu óbreyttu.

Lögreglumenn frá lögreglunni á Norðurlandi eystra og frá sérsveit ríkislögreglustjóra hafa staðið vaktina ásamt örðum við Jökulsá á Fjöllum síðustu daga.

Krapi í Jökulsá á Fjöllum hefur aukið flóðahættu á svæðinu.

Opnað verður aftur fyrir umferð um svæðið í dag með takmörkunum.