11 Febrúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Seltjarnarnesi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 80 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 400 grömm af marijúana sem var tilbúið til sölu. Karl á þrítugsaldri hefur játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.