15 Desember 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 10 kannabisplöntur en innandyra voru líka þrír karlar á þrítugsaldri í óða önn að klippa niður afraksturinn og voru þeir komnir með 350 grömm af marijúana þegar að var komið. Þremenningarnir voru handteknir og fluttir á lögreglustöð.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.