13 Maí 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 230 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Við húsleitir á heimilum þeirra fannst talsvert af marijúana.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.