27 Maí 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 4 kg af marijúana og tæplega 3 kg af hassi. Einnig var lagt hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.