23 Október 2009 12:00

Vegna þessa ítrekar lögreglan að hún hvetur fólk til að hafa samband þegar þýfi er annars vegar. Ennfremur er minnt á ábyrgð þess, þegar svo ber undir, sem kaupir þýfi. Í 264. gr. almennra hegningarlaga er m.a. kveðið á um eftirfarandi: Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.