1 Ágúst 2018 11:04

Mikið hefur verið kvartað undan reiðhjólafólki á höfuðborgarsvæðinu í sumar, en margir hjólreiðamenn eru sagðir virða allar umferðarreglur að vettugi og skeyta í engu um aðra vegfarendur í umferðinni. Lögreglan getur ekki sagt til um hversu margir haga sér með þessum hætti, en víst er að tilkynningarnir eru fjölmargar og berast þær henni daglega. Ábendingar eða kvartanir um reiðhjólafólk sem fer ógætilega hafa borist frá vegfarendum í öllum sveitarfélögum í umdæminu og segir það sína sögu. Þeir sem kvarta undan hjólareiðamönnum segja þá m.a. glannalega og hjóla í veg fyrir aðra vegfarendur, ýmist á akbrautum eða göngustígum. Eru þessir sömu hjólareiðamenn sagðir tillitslausir með öllu að mati þeirra sem hafa kvartað, en þeim síðarnefndu hefur oft verið mikið niðri fyrir þegar þeir hafa hringt í lögregluna og bent á þá miklu slysahættu sem þessu fylgir. Lögreglan biðlar til reiðhjólafólks, sem þetta á við um, að gera betur í umferðinni, þ.e. virða umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum bæði kurteisi og tillitssemi.