8 Janúar 2025 16:01
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 4. febrúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt.
Tveir slösuðust alvarlega í árásinni þar sem hnífi var beitt og hlaut annar þeirra lífshættulega áverka. Maðurinn, sem nú hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, var handtekinn á vettvangi.
Rannsókn málsins miðar vel.