22 Janúar 2021 17:29

Þrír karlar á þrítugsaldri voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í vikulangt áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 29. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í síðustu viku. 

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um gang hennar að svo stöddu.