22 Maí 2025 16:25

Karlmaður um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 29. maí, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í Úlfarsárdal um miðjan dag í gær. Sá sem fyrir árásinni varð, karlmaður á fimmtugsaldri, var fluttur á slysadeild og er líðan hans eftir atvikum.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.