28 Ágúst 2018 16:33
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar árás á stúlku í Garðabæ fimmtudaginn 23. ágúst sl. Nokkrar ábendingar hafa þegar borist vegna málsins en lögregla óskar nú sérstaklega eftir að ná tali af manni sem var á gangi með ljósan hund og konu sem var að skokka í bleikri peysu á göngustígnum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri í Garðabæ milli klukkan 14.10 og 14.30 sl. fimmtudag. Þessir einstaklingar og aðrir sem telja sig geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband í síma 444-1000, senda póst á abending@lrh.is eða senda einkaskilaboð á fésbókarsíðu lögreglunnar.